Tinna Hallbergsdóttir, gæðafulltrúi og meistaranemi
Ég er 32 ára, gift Brynjólfi A. Sandholt og saman eigum við tvö börn, Alexander 7 ára og Viktoríu 3 ára.
Ég vil finna leið til að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla, t.d. með því að innrita börn í leikskóla jafnt og þétt yfir árið og efla starf og traust á dagforeldra, t.d. með því að bærinn hafi utanumhald með skráningu barna hjá dagforeldrum, auka tíðni eftirlits og athuga hvort grundvöllur er fyrir samvinnu dagforeldra þegar kemur að veikindum þeirra, þannig að dagforeldrar hittist reglulega og þegar eitt þeirra veikist geti hinir dagforeldrarnir tekið að sér eitt barn hvert.
Ég legg áherslu á umhverfismálin og að fyrirtækin í Hafnarfirði séu hvött til að endurvinna plast í meira magni. Ennfremur vil ég sjá að hreinsun í fráveitum bæjarins verði efld, en með öflugri hreinsun er hægt að fanga um 99% af því plasti, þ.m.t. örplasti, sem rennur nú til sjávar í gegnum fráveitur bæjarins.
Ég tel það einnig afar mikilvægt að við höldum áfram á vegferð ábyrgrar fjármálastjórnar bæjarins og að við höldum áfram að þrýsta á stjórnvöld varðandi samgönguvandann sem snertir alla Hafnfirðinga.
Ég stunda meistaranám í Stjórnun og Stefnumótun hjá HÍ og hef starfað hjá Viðlagatryggingu Íslands sem gæðafulltrúi síðan 2008. Ég hef víðtæka reynslu, m.a. við gæða- og skjalastjórnun, hönnun og þróun upplýsingatæknikerfa, þátttöku í stefnumarkandi verkefnum, áhættustýringu, ritun samninga, þjálfun starfsmanna og innri úttektum.
Ég sit í stjórnum Fram, félags sjálfstæðismanna í Hafnarfirði frá 2017, Vorðboðans, félagi sjálfstæðiskvenna í Hafnarfirði frá 2018 og foreldrafélags Leikskólans Álfasteins frá 2012.