Samgöngumál hafa töluvert verið rædd að undanförnu í Hafnarfirði en nú nýverið var samþykkt að gera mislæg gatnamót við Reykjanesbraut og Krýsuvíkurveg sem löngu var orðið tímabært, verklok verða samkvæmt Vegagerðinni í lok nóvember á þessu ári .
Mikil aukning umferðar hefur verið á þessum gatnamótum sem og á vegakafla Reykjanesbrautarinnar sem fer í gegnum Hafnarfjörð. Þessi aukning hefur meðal annars leitt til þess að hringtorg við N1 á móts við Lækjargötu og Hlíðarberg, Hlíðartorg, er komið að þolmörkum með tilheyrandi hættu fyrir þá sem um hringtorgið þurfa að fara. Mikilvægt er einnig að farið verði í að tvöfalda þann kafla sem eftir er á þessu svæði.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar sendi frá sér ályktun á fundi þann 1 febrúar þar sem skorað er á ríkisvaldið að hefja viðræður við bæjaryfirvöld vegna þessa máls hið fyrsta.
Eftirfarandi er ályktun bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn fagnar útboði og fyrirhuguðum framkvæmdum vegna nýrra mislægra gatnamóta Krýsuvíkurvegar og Reykjanesbrautar. Um er að ræða fyrsta skrefið af fleiri brýnum verkefnum í uppbyggingu og endurnýjun stofnvegakerfisins í gegnum Hafnarfjörð. Bæjarstjórn skorar á sama tíma á Alþingi og ráðuneyti að marka tímasetta heildarstefnu á vegabótum á Reykjanesbraut innan Hafnarfjarðar og tryggja að fjármagni verði veitt í áframhaldandi framkvæmdir á svæði sem setið hefur eftir. Tryggt verði fjármagn á fjárlögum 2018 og næstu ára þar á eftir gerist þess þörf. Á þessum kafla, sem um ræðir í Hafnarfirði, eru átta gatnamót; tvö mislæg, þrjú T-gatnamót og tvö hringtorg sem eru orðin mikil slysagildra. Þessi tvö hringtorg eru, samkvæmt samantekt Umferðardeildar Vegagerðarinnar frá því í júní 2016, slysahæstu hringtorgin á höfuðborgarsvæðinu sem segir mjög mikið til um mikilvægi framkvæmdarinnar. Það er lífsnauðsynlegt að tryggja umferðaröryggi á þessu svæði og stuðla að því að m.a. íbúar á svæðinu komist öruggir til og frá heimilum sínum. Öngþveiti á annatímum hefur orðið til þess að umferðin hefur í auknum mæli færst inn í íbúðahverfin sjálf sem leitt hefur af sér aukinn hraða og aukna slysahættu. Mælingar sýna að umferð um Reykjanesbraut – Hafnarfjarðarveg ( Kaplakriki) að brú yfir Fjarðarbraut ( Strandgötu)(ÁDU) hefur aukist úr 15.373 bílum á dag árið 2000 í 28.851 árið 2015 og fer fjölgandi. Á þessari leið eru gatnamót á milli hverfa í Hafnarfirði en sívaxandi umferðarþungi, sem ekki síst má rekja til aukins ferðamannastraums til landsins, er að leggjast mjög þungt á samgöngur innan bæjarins. Hafnarfjörður býr við mun verra ástand hvað þetta varðar en nokkur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu þar sem allir ferðamenn sem koma til landsins fara umræddan veg á leið sinni til langflestra annarra staða á landinu. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar óskar eftir viðræðum hið fyrsta milli fulltrúa bæjarins og ríkisvaldsins vegna þessara mála.