Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði verður haldið laugardaginn 10. mars næstkomandi.
Kosningarétt hafa fullgildir meðlimir Sjálfstæðisfélagana í Hafnarfirði og þeir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins, sem eiga munu kosningarétt í kjördæminu við kosningar og undirritað hafa inntökubeiðni í Sjálfstæðisfélag í kjördæminu fyrir lok kjörfundar og teljast þar með komnir á flokksskrá. (Reglur um prófkjör Sjálfstæðisflokksins, settar af miðstjórn 10. apríl 1985)
Hægt er að skrá sig í flokkinn á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins http://xd.is/ganga-i-flokkinn/
Einnig verður hægt að ganga í flokkinn á kjörstað. Athugið að fólk á aldrinum 15 – 18 ára sem er ekki flokksbundið þurfa að ganga í flokkinn fyrir lok kjörskrár, þ.e.a.s. fyrir kl 17:00 föstudaginn 9.mars.
Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði